Ástrós Erla
EnergyMovementFlow - 5 session
EnergyMovementFlow - 5 session
Couldn't load pickup availability
✨🌞 ENERGY MOVEMENT 🌞✨
Í líkamanum okkar býr einstakur kraftur og lífsorka sem flæðir náttúrulega og heilar líkama okkar þegar við erum í jafnvægi. Þegar við erum í jafnvægi finnum við fyrir meiri gleði, orku, innri ró og aukinni tengingu við okkur sjálf. Daglegt líf og hraði getur hins vegar skapað spennu, streitu og hindranir sem loka á þetta fallega orkuflæði okkar.
Í Energy Movement notum við meðvitaða hreyfingu, öndun og líkamsvitund til að losa um þessar hindranir, vekja orkuna okkar aftur til lífs og koma líkamanum í jafnvægi. Þessi tími býður þér kærleiksríkt rými þar sem þú getur hlustað á líkama þinn, fundið hvað hann þarfnast og nært þig bæði andlega og líkamlega.
EnergyMovement (kl 8:30-9:45, alla þriðjudaga)
✨ Heildrænt jógaflæði
✨ Öndunaræfingar
✨ Sómatískar aðferðir og meðvituð hreyfing
✨ Qi Gong og tapping
✨ Orkulækningar og líkamsvitund
Hvað færðu út úr þessum tímum ?🌿
-
Losun á spennu og streitu: líkamlega, orkulega og í taugakerfi.
-
Styrkur og teyjur: Tækifæri til að styrkja líkama okkar sem og liðka
-
Sterkara orkuflæði og tilfinningalegt jafnvægi: aukin lífsorka, vellíðan og ró.
-
Öruggt og nærandi rými: til að styrkja tengingu þína við líkama þinn, bæði efnis- og orkulíkamann.
-
Meiri virðing og hlýja: gagnvart þér sjálfri/sjálfum, líkama þínum og sálinni.
-
Aukin slökun og kyrrð: andlega, líkamlega og tilfinningalega.
-
Innri hlustun og næmni: að finna og virða þarfir líkamans og sálarinnar.
Allir sem kaupa 5 skipta kort eða námskeið fá 20% afslátt á Mama Resturant á meðan tímum/námskeiði stendur 👏✨
Skráning og fyrirspurnir:
🌟Skráning fer fram hér
🌟Endilega hafið samband með einkaskilaboðum eða á astroserla@gmail.com ef þið eruð með frekari spurningar
💥Ég hlakka svo innilega til að fara aftur af stað með þessa tíma og vá hvað ég hlakka til að fylgja ykkur í gegnum ykkar einstöku ferðalög😍👏🙌
Share
