Ástrós Erla
EnergyMovement - Single Class
EnergyMovement - Single Class
Couldn't load pickup availability
✨🌞 ENERGY MOVEMENT🌞✨
Í líkamanum okkar býr einstakur kraftur og lífsorka sem flæðir náttúrulega og heilar líkama okkar þegar við erum í jafnvægi. Þegar við erum í jafnvægi finnum við fyrir meiri gleði, orku, innri ró og aukinni tengingu við okkur sjálf. Daglegt líf og hraði getur hins vegar skapað spennu, streitu og hindranir sem loka á þetta fallega orkuflæði okkar.
Í Energy Movement notum við meðvitaða hreyfingu, öndun og líkamsvitund til að losa um þessar hindranir, vekja orkuna okkar aftur til lífs og koma líkamanum í jafnvægi. Þessi tími býður þér kærleiksríkt rými þar sem þú getur hlustað á líkama þinn, fundið hvað hann þarfnast og nært þig bæði andlega og líkamlega.
Í tímunum förum við í fjölbreyttar aðferðir til að stuðla að góðu orkuflæði :
✨ Heildrænt jógaflæði
✨ Öndunaræfingar
✨ Sómatískar aðferðir og meðvituð hreyfing
✨ Qi Gong og tapping
✨ Orkulækningar og líkamsvitund
Þetta er tími þar sem líkaminn þinn fær að tjá sig. Við hlustum, losum og virkjum lífsorkuna þína á heildrænan hátt sem kemur á betra jafnvægi á þínu innra sem ytra lífi.
Hvað færðu út úr þessum tímum?🌿
🌿Losun á spennu og streitu: líkamlega, orkulega og í taugakerfi.
🌿Styrkur og teyjur: Tækifæri til að styrkja líkama okkar sem og liðka.
🌿Sterkara orkuflæði og tilfinningalegt jafnvægi: aukin lífsorka, vellíðan og ró.
🌿Öruggt og nærandi rými: til að styrkja tengingu þína við líkama þinn, bæði efnis- og orkulíkamann.
🌿Meiri virðing og hlýja: gagnvart þér sjálfri/sjálfum, líkama þínum og sálinni.
🌿Aukin slökun og kyrrð: andlega, líkamlega og tilfinningalega.
🌿Innri hlustun og næmni: að finna og virða þarfir líkamans og sálarinnar.
Share
